It's a plan stan.....
Jæja þá er þetta barasta allt að skýrast hjá okkur. Sunnudagurinn varð fyrir valinu, enda meiri hlutinn sem valdi hann. En þar sem okkur sýnist við ekki vera það mörg (miða við þá sem hafa commentað allavega ;) ...) að það borgi sig að leigja kjallarann þá er planið svo hljóðandi;
- Sunnudagurinn, upp úr 22:00 er mæting á Traðarland 8 og fyrir þá sem eru ekki alveg með það á hreinu þá er það húsið hjá Deddu&Snorra a.k.a mömmu og pabba Veru sem eru svo elskuleg að hýsa okkur villingana ;)
- Þar mun fólk spjalla, drekka, spjalla, drekka og vonandi sem flestir skunda saman á ball og dansa frá sér allt vit ;)
- Og makar eru aðsjálfsögðu velkomnir.....ef þeir þora það er að segja! :) hehe
Eru ekki allir sáttir við þetta??
Kær kveðja Vera pera og Gunna tunna...
Senn líđur ađ páskum....
Dagsetningar sem eru í boði eru eins og venjulega 21.mars (föstudagurinn langi) , 22.mars og 23.mars (páskadagur). 21 og 22.mars er Aldrei Fór Ég Suður sem margir vilja ekki missa af. Er þá ekki bara best að að hafa atkvæðagreiðslu eins og í fyrra?
Síðan er spurningin um hvar við eigum að vera. Eigum við að reyna fá Kjallarann eins og í fyrra? Eða er einhver sem vill verða gestgjafi? Endilega komið með hugmyndir í comment.
Svo viljum við biðja ykkur að láta orðið berast varðandi þennan hitting til allra fyrverandi bekkjafélaga okkar. Svo enginn gleymist :)
Annað mál á dagskrá er að senn líður að 10.ára fermingarafmæli okkar, 2009. Viljið þið gera eitthvað þá um sjómannadagshelgina (sem okkur finnst vera kjörinn helgi til að hittast á) hérna í Víkinni. Eða eigum við að bíða eftir 10.ára útskriftar afmælinu??
E.S fólk eruð þið til að senda mér e-mailin ykkar á vera_snorra@hotmail.com - einfaldara að senda e-mail á línuna en að leita ykkur uppi ;) hehe
Virkja síđuna....
Það yrði nú gaman að hittast í sumar, þið sem eruð stödd hérna í víkinni. Kannski grilla eða eitthvað... Er stemmari fyrir því?
Ef þið viljið fá lykilorðið að síðunni, til að blogga, koma með hugmyndir, fréttir eða hvað sem er. Endilega kommentið hér að neðan (skilja eftir e-mail) eða sendið mér mail á vera_snorra@hotmail.com og ég læt ykkur fá notendanafnið + lykilorðið....
Myndirnar
Síðan er líka linkur hérna vinstra megin ;)
- Vera
Takk fyrir síđast!
Kiddoz..!
Þið sem ætlið að koma á sunnudaginn;
- Leggið inn á reikning 1176-05-401934
- Kennitala; 2403852879
- Eigandinn ku vera Guðrún Halldóra Halldórsdóttir
Vinsamlegast leggið inn sem fyrst, helst fyrir laugardaginn! Svo við getum borgað Kjallarann og farið í búð.
Allt ađ skýrast..... =)
Sunnudagurinn bar sigur úr bítum og er því stefnan sett á hitting 8.apríl næstkomandi (GAMANGAMAN ;-D ...)
Við erum búin að ræða við Rögnu (sem rekur Kjallarann ef einhver skildi ekki vita það ;) ...) og fáum við Kjallarann út af fyrir okkur frá c.a 21 til miðnætis. Á aðeins 25.000 ísl.kr og innifalið í verðinu er einn Kútur! (topp díll!!)
Fyrir utan þennan eina kút er fólki velkomið að koma með sitt eigið áfengi, gos eða hvað svo sem það vill drekka um kvöldið.
En ATH! þegar Kjallarinn opnar fyrir almenning er ekki heimilt að vera með sitt eigið áfengi/drykki - verðið bara að klára það fyrir miðnæti og versla svo á barnum ;)
Síðan mun verða skemmtun eftir miðnæti á vegum Kjallarans sem ku bera nafnið Tveir trylltir og töfrandi.......spennandi ;) =)
Okkar tillaga er sú að hver og einn borgi 1500 ísl.kr (1200 kr fyrir Kjallarann og svo 300 kr í það að kaupa snakk og eitthvað gúmelaði til að maula)
Hvernig líst fólki á þetta? Commenta plís.... :)
Hverjir mćta?
Jæja, mig langar svo að fá það alveg á hreint hverjir ætla að mæta á hittinginn. Aðalega til að sjá hvort það borgi sig að leigja Kjallarann ;) Þess vegna hef ég skrifað niður lista yfir þá sem voru í 10.bekk GB. Að sjálfsögðu eru allir þeir sem hafa verið með okkur í bekk í grunnskóla velkomnir og ef þeim langar að koma commenta þeir bara hér að neðan :)
Sum sé sem sagt;langar mig að biðja ykkur sem ætlið að mæta að commenta hér að neðan um að þið ætlið að mæta og segja hvaða dag þið mynduð helst kjósa að hafa hittinginn á; Föstudag, laugardag eða sunnudag :) Og plís ekki segja "mér er alveg sama" taka afstöðu ;) Síðan verður þetta eins og í hverju öðru lýðræði - meiri hlutinn ræður :)
Atli Freyr -
Ágúst Svavar -
Ásta Björg - Alveg sama.
Berta Hrönn - Föstud. eða Sunnud.
Bjarni Pétur - Sunnudagur.
Egill Steinar - Laugardagur
Guðbjörg Stefanía -Sunnudagur
Guðmunda Sjöfn -
Guðmundur Kristinn - Alveg sama.
Guðrún Halldóra - Sunnudagur
Hafþór Ingi - alveg sama
Halldór - Laugardagur
Jón Ingi -
Karitas Sigurlaug - Laugardagur
Kristrún -
Sigurður Freyr -
Sigurjón Ragnar - fimmtudagur/sunnudagur.
Sigurvin - Sunnadagur
Snævar Sölvi - Sunnudagur
Stefán Örn F. -
Stefán Örn K. - föstudagur
Suphansa Phongsa -
Tinna -
Vera Dögg - sunnudagur
Þórarinn Leifur -laugardagur
Tillaga um dag :)
Núna er verið að velta fyrir sér dagsetningu; okkar tillaga er sú að hittast á sunnudeginum (8.apríl). Rökin sem við færum fyrir þeirri dagsetningu er einfaldlega sú að það eru ekki allir í skóla, mörg komin á vinnumarkaðinn. Þar af leiðandi eru einhverjir að týnast inn í bæinn bæði á miðvikud. og fimmtud. Á fimmtudaginn lokar allt á miðnæti. Svo er Aldrei Fór Ég Suður bæði á föstudeginum og laugardeginum. Sem enginn má að sjálfsögðu missa af ;)
Síðan erum við að velta því fyrir okkur að leigja Kjallarann (bara hugmynd) , er fólk almennt spennt fyrir því?
Endilega commentið og segið hvað ykkur finnst. Við erum opnar fyrir öllum tillögum - að sjálfsögðu :)
Síðan eitt annað svona í lokinn. Endilega látið orðið berast um þessa síðu til þeirra sem voru í bekknum :) Við erum nefnilega ekki 100% á því að öll símanúmerin voru rétt.
Gunna Dóra og Vera Dögg :)
Heil og sćl....
Þar sem við erum frekar OF-virkar hérna í víkinni ;) Ákváðum við að skella í eitt stykki heimasíðu. Ekki illa meint Ásta mín, en við fílum engan veginn mjólkurbekkjar-titilinn. Samt sem áður gott framtak hjá þér =)
Við hugsuðum síðuna aðalega sem auglýsingarstað til að byrja með. Svo fólk gæti ef til vill fylgst með þegar við plönum hitting.
Þannig að enginn ætti að verða út undan hvar sem hann er staddur í veröldinni :)
Það er komin upp á borðið sú hugmynd að halda hitting um páskana eins og Steini gerði í fyrra, sem var þrusu stuð. Enda ekki hægt að búast við öðru frá svona eðal skemmtilegum bekk :)
Við, stelpurnar, vorum settar í það hlutverk að fá að vita hverjar/ir væru væntanlegar/ir í Víkina fögur. Og að halda utan um hlutina. Lítill fugl hvíslaði því að okkur að ei væri hægt að treysta drengjum fyrir þessu. Þeir ættu víst erfitt með að framkvæma svona skemmtilegar hugmyndir - seljum það ekki dýrara en við stálum því. :)
En þið munið væntanlega fá sms frá okkur innan tíðar. Með beðni um tilkynningu hverjir séu líklegir Vestur og hafa áhuga á því að halda hitting. Einnig tilkynningu um þessa síðu. Vonum bara að þið takið vel í þetta! :)
